Slóvenía

Fólksfjöldi: 2,1 milljónir

Tungumál: Slóvenska

Gjaldmiðill: Evra

Höfuðborg: Ljubliana

Country Flag

Slóvenía liggur í hjarta Evrópu. Þó svo landið sé ekki stórt að flatamáli er landslagið fjölbreytt og stórbrotið. Fjallendið einkennist af köldum vetrum og heitum sumrum en við strandlengjuna er miðjarðarhafsloftslag með mildum vetrum og mjög heitum sumrum. Slóvenía í sinni núverandi mynd er ungt, landið öðlaðist sjálfstæði frá Júgóslavíu árið 1991. Slóvenía eru meðlimur af Evrópusambandinu, NATO og þeir eru einnig þáttakendur í Schengen sáttmálanum og evrusamstarfinu.

Opinber tunga í landinu er slóvanska sem er slavneskt tungumál. En á vissum svæðum er ítalska og ungverska einnig opinber tungumál samhliða slóvönsku.

Í Slóveníu er  mikið menningarlíf og finnast söfn, bókasöfn og gallerí vítt og breytt um landið. Þess má geta að engin Evrópuþjóð (miðað við höfðatölu) prentar jafn mikið af bókum.

Að sækja um

Opnað er fyrir umsóknir í grunnnám (bachelor) í febrúar-mars á vefnum eVS, þar sem hægt er að velja bæði enskt og slóvenskt viðmót. Farið er yfir umsóknir í maí eða júní og svör eru send út fyrir júnílok.

Frestir í mastersnám fer eftir hverjum stað fyrir sig. Opnað er fyrir  umsóknir frá júní til september. Upplýsingar um einstaka fresti sækir þú til skólanna sjálfra en umsóknum er skilað í gegnum vefinn eVS.

Námsgráður

Skólaárið er frá 1. október til 30. september og skipti í vetrarönn og sumarönn. Prófin eru yfirleitt í janúar, júní og september. Slóvenía er partur af Bologna ferlinu. Námsgráður á háskólastigi í Slóveníu eru:

  • Diplomirani (UN): slóvönsk bachelorgráða, þriggja til fjögurra ára nám (180 til 240 ECTS einingar).
  • Magister: Slóvönsk meistaragráða eitt til tveggja ára nám (60 til 120 ECTS einingar).
  • Doktorat znanosti, Slóvönsk doktorsgráða, þriggja ára nám (180 ECTS einingar).

Skólagjöld

Í opinbera skóla eru ekki skólajöld fyrir meðlimi Evrópusambandsins og EFTA. Hins vegar gæti verið krafst einhvers konar innritunargjalds líkt og í opinberum háskólum á Íslandi  Hins vegar gæti verið krafist gjalds fyrir doktorsnám.

Špičnik, Slóvenía. Mynd tekin af Blaž

Leit að námi

Í Slóveníu eru fimm háskókar (Univerza). Þrír af þeim eru opinberir háskólar og eru í höfuðborginni Ljubliana og í Maribrg og Primorska. Einkaháskólarnir eru hins vegar í Novo Gorica og Portoroz. Elstur þeirra er háskólinn í Ljubliana en hann hefur verið starfræktur síðan 1919. Hér er hægt að skoða framboð allra háskólanna. 

Nám á ensku

Á vefnum Study in Slovenia er hægt að leita að námi á ensku.

Menntasjóður

Menntasjóður

Að flytja til

Námsmenn geta fengið hjálp við íbúðarleit í Ljubliana hjá Student Service (a.t.h. síðan er á slóvönsku). Bæði í Ljubliana og Maribor er skortur á stúdentagörðum og íbúðum því þurfa stúdentar að finna sér sjálfir íbúðir. Oft er hægt að finna auglýsingar fyrir herbergi í þarlendum dagblöðum.

Erfiðast er að finna íbúð í kringum september – oktober, því er sniðugt að hefja íbúðaleitina í tíma.

Reynslusögur

Styrkir

Tenglar