Austurríki

Fólksfjöldi: 9,1 milljónir

Tungumál: (Auturrísk) þýska og ýmis

Gjaldmiðill: Evra

Höfuðborg: Vín

Country Flag

Lýðveldið Austurríki  (Republik Österreich) er landlukt ríki í Mið-Evrópu með um 8,9 milljónir íbúa. Landið er sambandslýðveldi sem samanstendur af níu sambandsríkjum. Höfuðborg þess heitir Vín. Austurríki einkennist af hálendi Alpafjallanna en teygir sig einnig inn að Bæheimsskógi og Pannonísku sléttunni. 19 háskólar eru í landinu og þó nokkuð af sérskólum á háskólastigi (fachhochschulen). Íslendingar hafa mikið sótt í söng- og tónlistarnám til Austurríkis, en einnig annað nám.

Að sækja um

Í Austurríki eru um 45 skólar á háskólastigi, þar af eru 17 Fachhochschulen sem eru minni háskólar sem sérhæfa sig í ákveðnum fögum. Háskólarnir í Vín, Graz, Innsbruck, Linz og Salzburg bjóða upp á öll hefðbundin háskólafög. Listaháskólar eru sex, fjórir læknaskólar og einn dýralæknaskóli staðsettur í Vín. Sérstakir háskólar eru fyrir tónlist og tónlistargreinar. Þar má m.a. nefna Universität für Musik und darstellende Kunst GrazUniversität für Musik und darstellende Kunst Wien og Universität Mozarteum Salzburg.

Skólaárið skiptist í tvo hluta, vetrarmisseri, sem hefst í október og stendur fram í janúar og sumarmisseri sem er frá mars og fram í júní. Gott vetrarfrí er á milli missera.

Sækja skal um í hvern skóla fyrir sig, ekki er neitt sameiginlegt umsóknarkerfi. Á vefjum flestra skóla er hægt að sækja um rafrænt og þar eru upplýsingar um ferlið í heild sinni. Umsóknarfrestur í háskólana er yfirleitt 1. september fyrir vetrarmisserið og 1. febrúar fyrir sumarmisserið. Upphaf náms er oftast á haustmisseri, en í stöku tilfellum er hægt að hefja nám á sumarmisseri. Margir háskólar bjóða upp á sérstakt nám fyrir útlendinga.

Til að fá inngöngu í austurríska háskóla, þarf oftast að sýna fram á að þú munir fá inngöngu í sambærilegt nám í heimalandinu. Þetta á þó ekki við í Fachhochschulen. Yfirleitt þarf að sýna fram á góða þýskukunnáttu og oftast þarf að taka þýskupróf, TestDaf eða ZOP. Í flestum borgum er auðvelt að komast á þýskunámskeið. OEAD heldur þýskunámskeið fyrir þá sem hafa fengið inngöngu en treysta sér ekki til að hefja venjulegt háskólanám strax. Umsóknarfrestur fyrir þau námskeið er til 1. sept. og með umsókninni verður að fylgja staðfesting um skólavist frá viðkomandi háskóla.

Námsgráður

Líkt og önnur Evrópulönd er Austurríki aðili að Bologna áætluninni sem felur í sér samkomulag m.a. um samræmingu háskólagráða innan Evrópulanda. Samkvæmt því skiptist námið í bachelorgráðu sem tekur 3 ár og mastersgráðu sem tekur yfirleitt tvö ár, Magister (FH) (sérstök meistaragáða fyrir kennara), sem tekur 1-2 ár í viðbót, Diplom fyrir sérstakar starfsgreinar eins og lögfræðinga, sem tekur 4 og 6 ár og doktorsgráðu sem fæst eftir tveggja til fjögurra ára nám eftir mastersnámið.

 

Skólagjöld

Engin skólagjöld eru í ríkisháskólana í Austurríki, en borga þarf skráningargjald, sem er um 380 evrur fyrir hvert misseri. Annað á við um einkaskóla.

Belvedere höll í Vín, Austurríki. Mynd tekin af Daniel Plan.
Jenbach, Austurríki. Mynd tekin af Paul Pastourmatzis.

Leit að námi

Leit að námi í Austurríki

Österreichischer Austauschdienst (OEAD) – alþjóðaskrifstofa háskólanna í Austurríki, þjónusta við erlenda stúdenta.

Listi yfir háskóla í Austurríki

Listaháskólar – arkitektúr, myndlist, hönnun, tónlist o.fl.

Þýskunám

Nám á ensku

Í flestum tilfellum fer kennsla fram á þýsku. Þó kenna nokkrir háskólar á ensku, einkum viðskiptaháskólar, svo sem Donau-Universität KremsUniversität für BodenkulturWebster University o.fl.

Menntasjóður

Menntasjóður

Veitt er lán til undirbúningsnáms í tungumálinu í eitt misseri (tvo fjórðunga þar sem það á við) en athugið að lánið er skilyrðisbundið því að áframhaldandi nám verði stundað í Austurríki.  Skilyrði fyrir útborgun lánsins er að vottorði um inngöngu í áframhaldandi nám sé skilað inn til menntasjóðsins. 

Að flytja til

Dvalarleyfi:

Ekki þarf að sækja um vegabréfsáritun til Austurríkis, en sótt er um dvalarleyfi þegar komið er út. Þá er mikilvægt að hafa meðferðis staðfestingu á skólavist (acceptance letter), fjárhagsvottorð (t.d. frá Menntasjóði eða banka) um að þú getir fjármagnað dvöl þína í landinu, gilt vegabréf, passamyndir og Evrópska sjúkratryggingarkortið. Ekki þarf sérstakt atvinnuleyfi til að vinna í Austurríki.

Húsnæði:

Það má reyna að sækja um vist á stúdentagörðum hjá OEAD áður en haldið er utan. Þó á að vera tiltölulega auðvelt að útvega sér húsnæði eftir að komið er til landsins.

OEAD – Whonraumverwaltungs Gmbh, húsnæði í nokkrum stærstu borgum Austurríkis.

Österreichische Hochschüler Innenschaft, Landssamtök austurrískra stúdenta eru með tengla á húsnæðisleitarsíður fyrir námsmenn víðsvegar um Austurríki.

Farfuglaheimili í Austurríki

Sjá einnig CasaSwap.com – International youth & student accommodation network. Hérna geta stúdentar í leit að húsnæði erlendis skráð sig í húsnæðisleit og einnig skráð sitt húsnæði til leigu eða skipta. Casa Swap er styrkt af Evrópusambandinu.

Sendiráð:

Utanríkisráðuneytið á Íslandi annast sendiráðsstörf en austurrískt sendiráð er í Kaupmannahöfn

Reynslusögur

Styrkir

Tenglar