BARI (BARI stendur fyrir Baltic Science Network Mobility Programme for Research Internships) er nýtt prógram sem veitir meðal annars styrki fyrir rannsóknartengt starfsnám á sviði lífvísinda, ljóseindarvísinda, nifteindafræða og velferðarríkja (Life Sciences, Photon & Neutron Science and Welfare State).
Þátttökulönd eru þau lönd sem tilheyra Eystrasaltsráðinu: Danmörk, Eistland, Finnland, Þýskaland, Ísland, Lettland, Litháen, Noregur, Pólland, Svíþjóð, Rússland og Hvíta Rússland.
Umsóknarferlið er tvíþætt:
Doktorsnemar sækja um að ráða til sín starfsnema (sem er í grunn- eða framhaldsnámi) í rannsóknartengt starfsnám.
Grunn- og framhaldsnemar geta síðan sótt um að fara í rannsóknartengt starfsnám hjá doktorsnema.
Allar upplýsingar eru hér