Hrafnkelssjóður var stofnaður 1930 af hjónunum Ólafíu Guðfinnu Jónsdóttur og Einari Þorkelssyni til minningar um son þeirra Hrafnkel Einarsson stud.polit. Styrk úr sjóðnum er úthlutað annað hvert ár, (þó er sú ákvörðun bundin við sjóðsstjórn).
Hlutverk Hrafnkelssjóðs er að veita íslenskum stúdentum styrk, þeim sem þess þurfa, til að sækja nám við erlenda háskóla og gilda um það eftirfarandi reglur:
Íslenskir stúdentar, sem hyggja á nám erlendis á meistara- eða doktorsstigi, og hafa lokið íslensku stúdentsprófi með að minnsta kosti annarri einkunn, eiga rétt á að sækja um styrk til sjóðsins.
Umsækjendur skulu greina frá eftirfarandi:
Námsgrein og skóla
Staðfestri skólavist
Ferilskrá
Hvernig námið muni gagnast umsækjanda og framtíðarsýn
Hvort umsækjandi njóti styrkja annars staðar frá
Afrit prófskírteinis og meðmæli fylgi umsókn
Við úthlutun úr Hrafnkelssjóði árið 2018 var styrkurinn krónur 1.000.000 kr.
Stjórn Hrafnkelssjóðs auglýsir styrkveitingu og skulu umsóknir hafa borist í síðasta lagi 13. júlí þau ár sem veitt er styrk. Styrkúthlutun er yfirleitt tilkynnt 13. ágúst.
Umsóknum um styrk úr Hrafnkelssjóði skal skilað til formanns Stúdentaráðs Háskóla Íslands á skrifstofu Stúdentaráðs, Háskólatorgi 2. hæð, við Sæmundargötu, 101 Reykjavík
Allar upplýsingar má finna á heimasíðu HÍ.