Árlega veitir The Canon Foundation in Europe styrki til rannsókna sem telja má líklegt að efli samvinnu og tengsl milli Evrópu og Japans. Styrkir þessir eru einkanlega veittir til rannsókna fyrir doktorsnema eða þeirra sem lokið hafa doktorsnámi, til náms/rannsókna í 1 – 3 – mánuði. Japanir og Evrópubúar geta sótt um. Veittir eru allt […] Lesa nánar...
Styrkir til rannsókna- og þróunarverkefna á sviði landbúnaðar. Lögð er áhersla á að verkefnin séu til þess fallin að auka framleiðni og arðsemi í landbúnaði. Forgang njóta verkefni sem efla nýsköpun. Nánari upplýsingar: Framleiðnisjóður Landbúnaðarins, fl@fl.is. Lesa nánar...
Fræðslusjóður Jóns Þórarinssonar var stofnaður með erfðaskrá Önnu Jónsdóttur ljósmyndara í Hafnarfirði. Hlutverk sjóðsins er “að styrkja til framhaldsnáms efnilegt námsfólk sem hefur lokið fullnaðarprófi við Flensborgarskólann í Hafnarfirði”. Anna Jónsdóttir var dóttir fyrsta skólastjóra Flensborgarskólans, Jóns Þórarinssonar, og með þessari ráðstöfun á eignum sínum vildi hún halda nafni og minningu hans á lofti. Hægt […] Lesa nánar...
Hagþenkir – félag höfunda fræðirita og kennslugagna veitir eftirfarandi styrki: Ferða- og menntunarstyrki Starfsstyrkir og þóknanir vegna ritstarfa Starfsstyrkir og þóknanir vegna fræðslu- og heimildarmynda Umsóknareyðublöð og upplýsingar eru á vefsíðu Hagþenkis. Lesa nánar...
Hrafnkelssjóður var stofnaður 1930 af hjónunum Ólafíu Guðfinnu Jónsdóttur og Einari Þorkelssyni til minningar um son þeirra Hrafnkel Einarsson stud.polit. Styrk úr sjóðnum er úthlutað annað hvert ár, (þó er sú ákvörðun bundin við sjóðsstjórn). Úthlutað var árið 2013. Hlutverk Hrafnkelssjóðs er að veita íslenskum stúdentum styrk, þeim sem þess þurfa, til að sækja nám […] Lesa nánar...
Í skipulagsskrá sjóðsins segir m.a.: “Tilgangur sjóðsins er að stuðla að framförum á sviði jarðefnafræða, byggingariðnaðar og skipasmíða. Stjórn sjóðsins er ennfremur heimilt að veita lán í sama tilgangi.” Skilyrði: Styrkirnir eru ætlaðir jarðefnafræðingum, verkfræðingum, arkitektum, tæknifræðingum og iðnaðarmönnum til framhaldsnáms, svo og til rannsókna á hagnýtum úrlausnarefnum í þessum greinum. Við mat á því […] Lesa nánar...
Viðskiptaráð veitir styrki úr Menntasjóði Viðskiptaráðs Íslands (MVÍ) til einstaklinga í framhaldsnámi við erlenda háskóla í greinum sem tengjast atvinnulífinu og stuðla að framþróun þess. Frekari upplýsingar veitir Viðskiptaráð, Borgartúni 35, 105 Reykjavík. Sími 510 7100. mottaka@vi.is. Lesa nánar...
Úr minningarsjóðnum er yfirleitt úthlutað einu sinni á ári. Samkvæmt skipulagsskrá sjóðsins skal vaxtatekjum hans varið til að veita stúdentum eða kandídötum í íslensku og sagnfræði styrki til einstakra rannsóknaverkefna er tengjast námi þeirra. Umsóknarfrestur rennur út í byrjun maí ár hvert. Umsækjendur skulu gera grein fyrir rannsóknaverkefni sínu og láta drög fylgja umsókn, sé […] Lesa nánar...
Minningarsjóður Eðvarðs Sigurðssonar veitir eftirtalda styrki: Styrk til að sækja námskeið eða afla sér með öðrum hætti þekkingar á verkalýðshreyfingunni og málefnum launafólks, innanlands eða erlendis. Um er að ræða styrki sem ætlaðir eru til að greiða að hluta til eða öllu leiti skráningargjöld, ferða- og/eða dvalarkostnað. Styrkirnir eru ætlaðir félagsmönnum í stéttarfélögum. Hámarksstyrkur er […] Lesa nánar...
Minningarsjóður Hans Adolfs Hjartarsonar, framkvæmdastjóra, var stofnaður í mars 1951 af ættingjum hans og bekkjarsystkinum, en Hans lést í janúar 1951. Sjóðurinn var stofnaður til að styrkja hjúkrunarfræðinga í framhaldsnámi. Umsókn og fylgiskjöl skulu berast rafrænt á þar til gerðu eyðublaði, á netfangið hansadolf@hjukrun.is fyrir miðnætti þann 1. október úthlutunarár. Staðfesting á skólavist eða fyrirhuguðu […] Lesa nánar...
Minningarsjóður Karls J. Sighvatssonar úthlutar einum námsstyrk árlega til handa efnilegum nemanda sem hyggur á framhaldsnám erlendis í orgel- eða hljómborðsleik. Auglýst er eftir umsóknum í kring um miðjan apríl ár hvert. Tilkynnt er um úthlutun fyrir 1. júní og afhending styrks á sér stað eigi síðar en 1. september. Nánari upplýsingar: Stjórn sjóðsins skipa […] Lesa nánar...
Tilgangur sjóðsins er að veita verðlaun hjúkrunarfræðingum sem skarað hafa fram úr í námi og sýnt sérstaka hæfileika til hjúkrunarstarfa. Sjóðurinn veitir einnig styrki til framhaldsnáms í hjúkrun. Nánari upplýsingar fást á skrifstofu Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, Suðurlandsbraut 22, 108 Reykjavík, sími: 540 6400, bréfsími: 540 6401 netfang: hjukrun@hjukrun.is. Skrifstofan er opin alla virka daga frá […] Lesa nánar...
Minningarsjóðurinn styrkir efnilega en efnalitla stúdenta til náms við Háskóla Íslands eða framhaldsnáms erlendis að loknu námi við Háskóla Íslands. Frekari upplýsingar eru á vef Háskóla Íslands. Lesa nánar...
Rétt til þess að sækja um ferða- og menntunarstyrki hafa þeir myndhöfundar sem hafa verið félagsmenn í Myndstefi í a.m.k. eitt ár enda hafi þeir veitt samtökunum umboð til þess að annast sameiginlega hagsmunagæslu fyrir sína hönd. Styrki skal veita til ferða sem umsækjandi fer vegna starfa sinna sem myndhöfundur eða til að leita sér […] Lesa nánar...
Umsóknir fyrir rannsóknarstyrki frá Matsumae International Foundation í Japan eru núna opnar, Um er að ræða 20 rannsóknarstyrkir fyrir 3-6 mánuði rannsóknarverkefni í Japan í nátturuvísindum, læknisfræðum, verkfræðum eða japönskum fræðum. Umsækjendur verða að hafa doktorspróf, vera 49 ára eða yngri, hafa ekki búið í Japan áður og auk þess að hafa góða ensku- og […] Lesa nánar...
Félagskonur ganga fyrir um styrki. Styrkirnir eru auglýstir í dagblöðum og fréttablaði félagsins að vori, og veittir að hausti. Umsækjendur skulu skila ítarlegum umsóknum ásamt afriti af prófskírteinum. Ekki er um sérstök umsóknareyðublöð að ræða en umsóknir skulu stílaðar á: Félag íslenskra háskólakvenna, Pósthólf 327, 121 Reykjavík. Sjá einnig Félag háskólakvenna. Lesa nánar...
Íslandsdeild Scandinavia-Japan Sasakawa Foundation mun árlega verja um 3 – 4 milljónum króna til að styrkja tengsl Íslands og Japans. Aðallega verða veittir styrkir til menntamála og rannsóknarverkefna, en auk þess fáeinir á sviði menningar og lista. Styrki þessa má veita stofnunum og einstaklingum. Styrkirnir eru til verkefna í samstarfi eða í tengslum við japanska […] Lesa nánar...
Watanabe Trust auglýsir styrki til náms eða rannsókna sem eru hluti af námi í Japan. Umsóknarfrestur er 15. janúar 2015. Styrkþegar skulu stunda japönskunám við Háskóla Íslands sem stunda vilja nám tímabundið í Japan. Frekari upplýsingar eru á http://www.sjodir.hi.is/watanabe_trust_fund. Einnig má hafa samband við Hafliða Sævarsson, í síma 525-5264 eða með að senda tölvupóst á […] Lesa nánar...